Home / Fréttir / Aðalfundur Slow Food á Íslandi

Aðalfundur Slow Food á Íslandi

Aðalfundarboð

Slow Food á Íslandi (Slow Food Icelandic Network)

Stjórn Slow Food á Íslandi boðar hér með til aðalfundar félagsins, í samræmi við 5. og 6. gr. samþykkta félagsins.

🗓 Mánudaginn 11. maí 2026
🕗 kl. 20:00
💻 Rafrænn fundur á Zoom
🔗 https://us06web.zoom.us/j/87200073999?pwd=aSvalaB5ht2riKus2vjl7ps7AvORMe.1

Atkvæðisréttur

Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa þeir félagsmenn sem eru skráðir í félagið og hafa greitt félagsgjöld eigi síðar en viku fyrir aðalfund. Aðalfundur er öllum opinn.

Dagskrá aðalfundar

(samkvæmt samþykktum félagsins)

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar lögð fram
  3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
  4. Lagabreytingar (ef við á)
  5. Kosning stjórnar og skoðunarmanna reikninga
  6. Stefnumótun næsta árs
  7. Önnur mál

Framboð í stjórn og kjör formanns

Hér með er auglýst eftir framboðum í stjórn Slow Food á Íslandi.
Samkvæmt samþykktum er á aðalfundi kosið um þrjú (3) sæti í stjórn til tveggja ára í senn, auk varamanna til eins árs.

Þar sem árið 2026 er slétt ár verður jafnframt kosið um formann félagsins, sem er kosinn í sérstakri kosningu til tveggja ára.

Framboð til stjórnar, vara stjórnar og formanns, þurfa að berast stjórn með góðum fyrirvara og í síðasta lagi 27. apríl. Framboð skulu send á [email protected]

Lagabreytingar

Tillögur að lagabreytingum skulu berast stjórn tveimur vikum fyrir aðalfund og verða sendar félagsmönnum með síðara fundarboði, eigi síðar en einni viku fyrir fund.

Síðara og skriflegt fundarboð með nánari dagskrá, framboðum (eftir því sem við á), tillögum og Zoom‑hlekk verður sent félagsmönnum með lögboðnum fyrirvara.

F.h. stjórnar
Slow Food á Íslandi

Dóra Svavarsdóttir, formaður

Slow Food í Reykjavík notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Stillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á slowfood.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Decline all Services
Accept all Services