Home / Fréttir / Matarslóðir Snæfellsness

Matarslóðir Snæfellsness

Allt áhugafólk um m atarmenningu og gómsæt matvæli býðst tækifæri til að skoða í matarkistu Snæfellsness og kynnast fólkinu á bak við hráefnið – þeim sem rækta, framleiða og skapa með ástríðu og virðingu fyrir náttúru og staðbundinni menningu.
Hér er hlekkur á skráningu í ferðina: https://forms.gle/4rBmjYBWxWgJi38m8
Á Snæfellsnesi mætast hefðir og nýsköpun á einstakan hátt svo úr hefur þróast fjölbreytt framleiðsla á hágæða matvælum, sem við fáum að smakka, skoða og skilja. Í stuttu máli að njóta þess besta sem Snæfellsnes hefur upp á að bjóða.
Innifalið er ævintýrakvöldverður í Hlöðunni á Miðhrauni á föstudagskvöldið, léttur hádegisverður á laugardag, auk fjölmargra heimsókna til smáframleiðenda um allt Snæfellsnes með kynningu á þeirra vörum, smakki og fróðleik bæði föstudag og laugardag.
Mæting á Miðhrauni á Snæfellsnesi föstudaginn 1. maí kl 11.00. Þátttakendur sameinast í bíla til að ferðast á milli staða.
Ferðin kostar 39.500 á mann.
Greiðist inn á reikning Crisscross:
kt: 690416-2470
banki: 0301 – 26 008512
Skýring: Matarslóðir
[email protected] greiðið staðfestingargjald 10.000 kr fyrir 1. apríl. Lokagreiðsla 29.500 greiðist eigi síðar en 24. apríl.
Þátttakendur í ferðinni greiða sérstaklega fyrir gistingu.
Ef bókað er hjá okkur getum við boðið afslátt á gistingu á Miðhrauni – Lava Resort sem er fjölskyldurekinn gististaður á sunnanverðu Snæfellsnesi, rétt áður en komið er að afleggjaranum yfir Snæfellsnes um Vatnaleið (þjóðveg 56).
Auk gistingar er á Miðhrauni lítið fjárbú, náttúrubað, sauna og veitingastaður í gömlu Hlöðunni.
Innifalið í gistingu er aðgangur að náttúrubaðinu og vel úti látið morgunverðarhlaðborð í Hlöðunni.
Hér er hlekkur á skráningu í ferðina: https://forms.gle/4rBmjYBWxWgJi38m8
Hægt er að velja úr mismunandi gistimöguleikum:
Herbergi í Ömmuhúsi – með sameiginlegri salernisaðstöðu. í húsinu eru 5 herbergi og 3 salerni.
Tilboðsverð fyrir herbergi fyrir 2 með morgunmat: 25.000 kr
Tilboðsverð fyrir herbergi fyrir 1 með morgunmat: 22.000 kr
Gisting í 4ja manna húsi (tvö 2ja manna svefnherbergi, eldhúsaðstaða og salerni)
Tilboðsverð fyrir herbergi fyrir 2 með morgunmat: 27.750 kr
Tilboðsverð fyrir herbergi fyrir 1 með morgunmat: 24.750 kr
Gisting í 2ja manna húsi (eitt 2ja manna svefnherbergi, eldhúsaðstaða og salerni).
Tilboðsverð fyrir 2 í herbergi með morgunmat: 41.000 kr
Tilboðsverð fyrir 1 í herbergi með morgunmat: 38.000 kr
Athugið að hægt er að velja gistingu í 4ja manna húsi þó einungis séu 2 saman en þá munu við úthluta hinu herberginu til annarra í hópnum. Ef þið hafið óskir með hverjum þið viljið vera í húsi er hægt að skrifa það inn í pöntunarforminu.
Til glöggvunar má sjá mismunandi gistimöguleika á Miðhrauni hér: https://lavaresort.digitalfamtrip.com/lr-interactive-video
Viðburðurinn er samstarfsverkefni Slow Food á Íslandi, Crisscross matarferða og Svæðisgarðsins á Snæfellsnesi.

Slow Food í Reykjavík notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Stillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á slowfood.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Decline all Services
Accept all Services