Fyrsti rafræni aðalfundur Slow Food Reykjavík var vel sóttur og heppnaðist vel. Notast var við fundarforritið Zoom. Samþykktar voru tvær lagabreytingar og kjörin fimm manna stjórn ásamt tveimur varamönnum og skoðunarmönnum reikninga eins og hér segir:
- Formaður er Dóra Svavarsdóttir.
- Ritari er Dominique Plédel Jónsson.
- Gjaldkeri er Gunnþórunn Einarsdóttir.
- Meðstjórnendur eru Sveinn Kjartansson og Svavar Halldórsson.
- Varamenn eru Cornel G. Popa og Ólafur Dýrmundsson.
- Skoðunarmenn reikninga eru Guðjón Gunnarsson og Eygló Björk Ólafsdóttir.