Home / Fréttir / Aðalfundur Slow Food Reykjavík

Aðalfundur Slow Food Reykjavík

Aðalfundur Slow Food í Reykjavík

verður á zoom miðvikudaginn 15. nóvember kl 20.00

Slóð á rafrænann aðalfund Slow Food Reykjavík 15. nóv kl 20:00
Topic: Aðalfundur Slow Food Reykjavík
Join Zoom Meeting
https://us06web.zoom.us/j/83330885014

Sérstakur gestur aðalfundar er Eleonora Olivero, sérlegur tengiliður Norðurlandanna við Slow Food International. Hún fræða okkur aðeins um alþjóðastarfið og hvernig við sem almennir félagar getum tekið þátt.

Dagskrá aðalfundar verður sem hér segir:

Kosning fundarstjóra og fundarritara
Erindi  Eleonoru
Skýrsla stjórnar lögð fram
Reikningar lagðir fram til samþykktar
Lagabreytingar
Stefnumótun næsta árs
Kosning stjórnar og skoðunarmanna reikninga
Kosning kjörstjórnar
Önnur mál

Hér að neðan eru breytingartillögur á lögum félagsins kynntar.

Greiðsluseðill fyrir félagsgjöldum hefur verið sendur í heimabanka núverandi og fyrrverandi félaga í samtökunum. Hann birtist undir valgreiðslum.
Vilji fólk skrá sig í Slow Food Reykjavík samtökin þá er hér hlekkur á skráningarform. Greiðsluseðill verður síðan sendur í heimabanka.
https://zoel9oz99ux.typeform.com/to/N3vrq0T0

Sjáumst við skjáinn.
F.h. stjórnar
Dóra Svavarsdóttir
Formaður

Hér að neðan eru breytingatillögur á samþykktum Slow Food í Reykjavík, skráðar með rauðu letri og yfirstrikað það sem myndi falla út:

Samþykktir
Slow Food í Reykjavík er í dag eina virka deild Slow Food á Íslandi. Samþykktir voru skráðar í desember 2018 og er 5 manna stjórn + 2 varamenn kosin skv. þeim.

SAMÞYKKTIR

1.gr.
Félagið heitir Slow Food í Reykjavík, deild („convivium“) innan vébanda Slow Food International á Ítalíu. Varnaþing þess er í Reykjavík.

2. gr. Tilgangur Slow Food í Reykjavík:
a) Að vinna að verkefnum Slow Food International á Íslandi.

Samþykktir
Slow Food í Reykjavík er í dag eina virka deild Slow Food á Íslandi. Samþykktir voru skráðar í desember 2018 og er 5 manna stjórn + 2 varamenn kosin skv. þeim.

SAMÞYKKTIR

1.gr.
Félagið heitir Slow Food í Reykjavík, deild („convivium“) innan vébanda Slow Food International á Ítalíu. Varnaþing þess er í Reykjavík.

2. gr. Tilgangur Slow Food í Reykjavík:
a) Að vinna að verkefnum Slow Food International á Íslandi.
b) Skráning og upplýsingaöflun um verðmætar afurðir og vinnsluaðferðir í útrýmingarhættu, eða sem eiga á annan hátt undir högg að sækja.
c) Styrkja samband smáframleiðenda/bænda/sjómanna við neytendur.
d) Vinna að upplýstri umræðu um umhverfismál og sjálfbærni, svo og áhrif matarvenja og framleiðslu á umhverfið og samfélagið í heild.
e) Matur á að vera: Góður, hreinn og sanngjarn eins og Slow Food International lýsir stoðum hreyfingarinnar. Vinna að slagorðum samtakanna: Matur á að vera góður, hreinn og sanngjarn.
f) Taka þátt í alþjóðastarfi Slow Food International.

  1. gr.
    Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að:
    a) Halda reglulega viðburði í nafni Slow Food í Reykjavík a.m.k. annan hvern mánuð.
    b) Koma hugmyndafræði og sjónarmiðum Slow Food á framfæri í fjölmiðlum og samfélagslegri umræðu.
    c) Koma hugmyndafræði Slow Food að hjá ríki og sveitarfélögum sem og fyrirtækjum. Annast útgáfu á fræðsluefni.
    d) Útfæra verkefni frá Slow Food International á hverjum tíma.
    e) Taka þátt í vinnuhópum, nefndum, fundum um málefni sem varða jafnt matvælaframleiðslu og umhverfismál í breiðum skilningi.
  2. f) Eiga fulltrúa í stjórn Slow Food í Norden og taka virkan þátt í vinnu Norrænu samtakanna.

4.gr.
Einstaklingar geta skráð sig í Slow Food í Reykjavík á heimasíðu félagsins og telst viðkomandi gildur félagsmaður þegar umsókn hefur verið staðfest og greidd (hægt er að greiða til 1 árs eða 3ja ára).
Félagsaðild nær einungis til einstaklinga skv. reglum Slow Food International.

  1. gr.
    Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Aðeins félagsmenn sem voru á félagaskrá og hafa greitt félagsgjöldin viku fyrir aðalfund hafa atkvæðarétt á aðalfundi, en aðalfundur er öllum opinn Á aðalfundi skal kjósa kjörstjórn sem sér til þess að kosningar séu lögmætar og leysir úr deilumálum ef einhver eru.
  2. gr.
    Aðalfund skal halda eigi síðar en 1. ágúst ár hvert og skal boða til hans með að minnst fjögurra vikna fyrirvara á heimasíðu og Facebook síðu félagsins svo og útsent fundarboð í tölvupósti til allra félagsmanna eftir því sem við verður komið. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Einfaldur
    meirihluti mættra félagsmanna (eða þátttakanda ef um rafrænan aðalfund er að ræða) ræður úrslitum mála. Skriflegt fundarboð (seinna fundarboð) með dagskrá og með tillögum til lagabreytinga sem leggja á fyrir aðalfund skal senda félagsmönnum með tölvupósti eða kynna með öðrum hætti
    með eigi minna en einnar viku fyrirvara.
    Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

    Kosning fundarstjóra og fundarritara
    Skýrsla stjórnar lögð fram
    Reikningar lagðir fram til samþykktar
    Lagabreytingar
    Stefnumótun næsta árs
    Kosning stjórnar og skoðunarmanna reikninga
    Kosning kjörstjórnar

Stefnumótun næsta árs
Önnur mál

Tillögur að lagabreytingum þurfa að berast stjórn tveimur vikum fyrir boðaðan aðalfund og sendar út af stjórn til kynningar með síðara aðalfundarboði til félagsmanna í síðasta lagi einni viku fyrir aðalfund. Einnig verða lagabreytingar kynntar á heimasíðu Slow Food í Reykjavík.

7.gr.
Stjórnin er skipuð fimm manns og tvo varamenn sem eru kosnir til tveggja ára. Formaður er kosinn í sérstakri kosningu til tveggja ára. Formaður og tveir stjórnarmenn eru kosnir annað árið, en tveir stjórnarmenn hitt árið, til tveggja ára í senn. Kosning skal vera skrifleg. Stjórn fer með æðsta vald í málefnum samtakanna á milli aðalfunda og sér um að fylgja eftir samþykktum aðalfundar og lögum samtakanna. Stjórn ber ábyrgð á fjárreiðum samtakanna.  Fulltrúi í stjórn Slow Food i Norden er sjálfkrafa fulltrúi í stjórn SFR og verður þá mögulega 6 aðili í aðalstjórn. Á aðalfundi skal enn fremur kjósa tvo skoðunarmenn reikninga til eins árs í senn. Fulltrúi úr Slow Food Youth sitji jafnframt stjórnarfundi Slow Food í Reykjavík.

8.gr.
Upphæð félagsgjalda er ákveðin af Slow Food International og sjá alþjóðasamtökin um að innheimta gjöldin og sér Slow Food í Reykjavík um innheimtu félagsgjalda. Slow Food í Reykjavík, fær hlutdeild í þeim gjöldum félagsmanna á Íslandi sem eru ákveðin af Slow Food International. sendir út til alþjóðasamtakanna þeirra hluta af félagsgjöldunum.

  1. gr.
    Rekstrarafgangi félagsins skal varið í starfsemi félagsins til að ná markmiðum þess.
  2. gr
    Almennur félagafundur skal boðaður af stjórn. Eins geta 25% skráðra félaga óskað eftir félagafundi. Stjórn og málefnahópar undirbúa félagafundina og auglýsa þá.

11. gr
Ákvörðun um slit félagsins skal taka á aðalfundi með aukinn meirihluta atkvæða (tvo þriðju) og renna eignir og fjármunir ef einhverjir eru til Slow Food International.

 

Scroll To Top

Slow Food í Reykjavík notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Stillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á slowfood.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Decline all Services
Accept all Services