Hann stofnaði Slow Food árið 1986 til að bregðast við útbreiðslu skyndibita og einsleitni í matarmenningu og lagði áherslu á „góðan, hreinan og sanngjarnan mat fyrir alla“.
Árið 2017 kom Carlo Petrini til landsins og hélt fyrirlestur um sjálfbærni, matarmenningu og framtíð matvælaframleiðslu.
Petrini sagði að Íslendingar ættu að vera stoltir af matarmenningu sinni og þeim matvælum sem landið hefur upp á að bjóða og leggja meiri áherslu á að halda þeim á lofti. Að hans mati fælist mikill styrkur í íslenskri matargerð og staðbundinni framleiðslu sem mikilvægt væri að varðveita og efla til framtíðar.
Þrátt fyrir að hafa verið búinn að stíga til hliðar hjá samtökunum, þá lét hann sig málefnin alltaf varða og var síðast í sambandi við okkur á Íslandi núna í vetur.
Takk fyrir allt Carlo!
Slowfood á Íslandi / Icelandic Network Slowfood á Íslandi / Icelandic Network
