Á aðalfundi Slow Food á Íslandi þann 11. maí var einróma samþykkt ákvörðun stjórnar að útnefna Dominique Plédel Jónsson sem heiðursfélaga samtakanna, viðurkenning sem veitt er fyrir framúrskarandi framlag til Slow Food hreyfingarinnar á Íslandi.
Dominique hefur um árabil verið mikilvægur drifkraftur í starfi Slow Food hér á landi og lagt bæði hug, hjarta og ómetanlega þekkingu í að efla matarmenningu, tengja saman fólk og miðla gildum hreyfingarinnar um góðan, hreinan og sanngjarnan mat. Hún var aðal drifkrafturinn á bakvið stofnun samtakanna hér á landi og er grunnurinn af starfinu okkar í dag byggður á hennar krafti.
Það er okkur mikill heiður að fá að þakka henni fyrir hennar framlag með þessum hætti 
Slowfood á Íslandi / Icelandic Network Slowfood á Íslandi / Icelandic Network
