Slow Food á Íslandi og Viðskiptaráð Tórínó bjóða upp á einstaka ferð um Piemonte svæðið í tengslum við Terra Madre Salone del Gusto í Torino, sem er haldin 24. – 27. september.
https://2026.terramadresalonedelgusto.com/
https://2026.terramadresalonedelgusto.com/
Slow Food sælkeraferðin er tveggja daga ferð um svæði Savor Piemonte þar sem smáframleiðendur á svæðinu eru heimsóttir. Við fáum að fræðst um þeirra framleiðslu og fáum innsýn í hvernig er að vera smáframleiðandi í þessu mikla matvælahéraði Ítalíu.
Ferðin hefst í Malpensa að morgni þriðjudags 22. september og endar í Tórínó á miðvikudagskvöldið 23. september. Malpensa er alþjóðlegur flugvöllur Mílanó og bæði Easy jet og Icelandair fljúga beint.
Þriðjudagurinn 22. september
Hópurinn hittist kl. 10.00 í Malpensa (nánari staðsetning kemur inn síðar) og leggur af stað með rútu.
Heimsóknir þennan daginn eru áhugaverðar og vekja bragðlaukana. Byrjað er á heimsókn hjá hrísgrjónaræktanda og snæddur hádegisverður. Eftir hádegið verða tveir vínframleiðendur heimsóttir og skoðuð heimaverslun ásamt því að smakka framleiðslu af svæðinu.
Heimsóknir þennan daginn eru áhugaverðar og vekja bragðlaukana. Byrjað er á heimsókn hjá hrísgrjónaræktanda og snæddur hádegisverður. Eftir hádegið verða tveir vínframleiðendur heimsóttir og skoðuð heimaverslun ásamt því að smakka framleiðslu af svæðinu.
Cascina Oschiena, hrísgrjónaræktandi
https://www.cascinaoschiena.it/index.html
https://www.cascinaoschiena.it/index.html
Enoteca dei Vini della Provincia di Torino, vínframleiðandi
https://enotecaregionaletorino.wine/
https://enotecaregionaletorino.wine/
La Palera, vínframleiðandi
https://www.lapalera.com/en/
https://www.lapalera.com/en/
Í lok dagsins er slakað á í fallegu umhverfi og á huggulegu hóteli Le Ali del Falco sem hópurinn hefur út af fyrir sig í sveitinni.
https://alidelfalco.com/
https://alidelfalco.com/
Miðvikudagurinn 23. september
Lagt af stað í næstu ævintýri eftir morgunmat kl. 8.30 eftir huggulega dvöl á Le Ali del Falco.
Heimsóknir þennan daginn er fjölbreyttar byrjað er á að heimsækja truffluframleiðenda svo háskólann University of Gastronomic Sciences of Pollezo (UNISG) þaðan er farið og heimsótt býli sem ræktar grænmeti og ávexti. Í lok dags býður Viðskiptaráð Tórínó okkur upp á kvöldverð á veitingastaðnum Mille í Tórínó.
Tartuflanghe, truffluframleiðandi
https://tartuflanghe.com/
https://tartuflanghe.com/
University of Gastronomic Sciences of Pollenzo (UNISG)
https://www.unisg.it/
https://www.unisg.it/
Cascina Fiume, grænmetis-og berjaræktun og framleiðsla
https://www.cascinafiume.it/
https://www.cascinafiume.it/
Mille Restaurant í boði að Viðskiptaráði Tórínó
https://millerestaurant.it/
https://millerestaurant.it/
Á miðvikudagskvöldið eru síðan allir á sínum eigin vegum með gistingu í Tórínó.
Upplifðu Piemonte svæðið á einstakan hátt, með fólki sem elskar mat og matarupplifun. Verð fyrir þessa ferð er 69.000.- á manninn, staðfestingargjald 20.000.-. Hægt að óska eftir að bæta við gistingu í Malpensa aðfaranótt þriðjudags en það er ekki innifalið og greiðist sérstaklega fyrir það.
Innifalið í ferðinni:
Heimsóknir til framleiðenda 22. og 23. september
Hádegis og kvöldverðir 22.og 23. september
Gisting á Le Ali del Falco 22. september
Rúta 22. og 23. september
Hádegis og kvöldverðir 22.og 23. september
Gisting á Le Ali del Falco 22. september
Rúta 22. og 23. september
Við hjá Slow Food á Íslandi og Viðskiptaráð Tórínu viljum bjóða þig/ykkur velkomin í þetta bragðferðalag með okkur.
Þórhildur María Jónsdóttir, matreiðslumeistari og ferðamálafræðingur verður fararstjóri í þessari ferð. Hún hefur tvisvar farið á Terra Madre Salone del Gusto í Tórínó og fyrir tveim árum fór hún með hóp í fræðsluferð um Piemonte svæðið. Í haust verða nýir framleiðendur og bændur heimsóttir.
Hluti af íslendingahópnum heldur til á Best Western Crystal Palace Hotel https://www.hotelcrystalpalace.it/en/ sem er rétt við hliðina á Torino Porta Nuova lestarstöðinni á meðan Terra Madre Salone del Gusto hátíðinni stendur.
Hægt er að skrá þátttöku hér í Slow Food ferð til Savor Piemonte 22.-23.september
https://docs.google.com/…/1FAIpQLSdEX69puPoHkY…/viewform
https://docs.google.com/…/1FAIpQLSdEX69puPoHkY…/viewform
Hægt er að fá nánir upplýsingar á [email protected] eða hjá farastjóra [email protected] eða í síma 863 6355
Takmarkað sætaframboð í þessa ferð.
Verið velkomin.
Slow Food á Íslandi og Viðskiptaráð Tórínó
Slowfood á Íslandi / Icelandic Network Slowfood á Íslandi / Icelandic Network
