Bréf frá Slow Food á Íslandi, Beint frá býli, Samtökum smáframleiðenda matvæla og
VOR – verndun og ræktun, til framboða í sveitarstjórnarkosningum 2026.
Kæru frambjóðendur,
Slow Food á Íslandi, Beint frá býli, Samtök smáframleiðenda matvæla og samtökin VOR – verndun og ræktun senda hér með sameiginlegt erindi til allra framboða í sveitarstjórnarkosningum á Íslandi 2026.
Í ljósi komandi kosninga óskum við eftir upplýsingum um stefnu ykkar í matartengdum málefnum og um innkaupastefnu þess sveitarfélags sem þið bjóðið fram í, sérstaklega hvað varðar matarinnkaup fyrir opinbera þjónustu.
Sveitarfélög á Íslandi eru meðal stærstu kaupenda matvæla á landinu. Þau bera meginábyrgð á matarinnkaupum fyrir leikskóla, grunnskóla, frístundaheimili, félagsþjónustu og aðra þjónustu við íbúa. Því hefur innkaupastefna sveitarfélaga veruleg áhrif – ekki einungis á lífsgæði og heilsu barna og annarra notenda mötuneyta, heldur einnig á:
- stöðu og þróun matvælaframleiðslu, þar á meðal lífræna framleiðslu, smáframleiðslu og matarmenningu
- sjálfbærni, matarsóun og kolefnisspor samfélagsins,
- aðgengi allra að hollum, góðum og hreinum mat,
- styrkingu nærsamfélags og atvinnulífs á svæðinu.
Meðvituð og ábyrg innkaupastefna er eitt öflugasta stjórntæki sveitarfélaga til að stuðla að bættri matarmenningu, heilbrigðari matarvenjum og sjálfbærari rekstri – og til að skapa skýrari hvata fyrir matvælaframleiðslu sem byggir á gæðum, gagnsæi og siðferðilegum grunni.
Við viljum því biðja ykkur um að svara eftirfarandi spurningum:
- Mötuneyti og gæði matar
a) Hvaða markmið hefur framboðið varðandi gæði og heilnæmi matar í mötuneytum sveitarfélagsins?
b) Hvernig hyggst framboðið tryggja að börn, aldraðir og aðrir notendur þjónustunnar fái góðan, hollan og næringarríkan mat? - Innkaupakerfi og útboð
a) Hvaða afstöðu hefur framboðið til innkaupakerfa og opinberra útboða á matvælum?
b) Hvernig sjáið þið fyrir ykkur að innkaup þróist svo sem m.t.t. sveigjanleika, gagnsæis, gæða og sjálfbærni? - c) Hvernig viljið þið ná þeim markmiðum?
- Staðbundin og sjálfbær hráefni
a) Hvernig hyggst framboðið vinna að því að auka notkun á staðbundnu og sjálfbæru hráefni, þar á meðal lífrænt vottuðu, í mötuneytum sveitarfélagsins?
b) Telur framboðið mikilvægt að styðja við nálæg fyrirtæki og framleiðendur með skýrum markmiðum í innkaupastefnu – og hvernig hyggst framboðið tryggja að reglur og framkvæmd innkaupa styðji við þau markmið?
Til að efla upplýsta umræðu munum við birta opinberlega samantekt á svörum framboðanna, og sýna þannig kjósendum stefnu og viðhorf ólíkra framboða til málefna, sem tengjast mat, matarinnkaupum og innkaupastefnu sveitarfélagsins sem þau bjóða fram í.
Við þökkum ykkur kærlega fyrir að gefa ykkur tíma til að svara og hlökkum til samstarfs og samtals um hvernig megi stuðla að bættri matarmenningu og aukinni sjálfbærni innan sveitarfélaga landsins.
Okkur þætti vænt um að fá svör eigi síðar en 20. apríl 2026. Svör sendist á [email protected]
Með vinsemd og virðingu,
F.h. Slow Food á Íslandi
Dóra Svavarsdóttir, formaður
F.h. Beint frá býli & Samtök smáframleiðenda matvæla
Oddný Anna Björnsdóttir, framkvæmdastjóri
F.h. VOR – verndun og ræktun
Elínborg Erla Ásgeirsdóttir, formaður
Slowfood á Íslandi / Icelandic Network Slowfood á Íslandi / Icelandic Network



