Matarmarkaður Búrsins verður haldinn 1. og 2. mars 2014 (opnunartími frá 11 til 17) í Hörpu. Eirný Sigurðardóttir, eigandi Ljúfmetisverslunarinnar Búrsins og Hlédís Sveinsdóttir halda utan um þennan merkilegan viðburð – síðast mættu 16 000 manns á Jólamarkaðinn. Markaðurinn hefur fengið Slow Food stimpilinn þar sem smáframleiðendur einir verða á staðnum og verslun beint frá framleiðandanum til neytandans.
Á sama tíma mun Harpa hýsa Búnaðarþingið sem verður í fyrsta skipti öllum, opið og Food and Fun keppnina.