Aðalfundur SFR verður miðvikudaginn 27. október kl. 20.00 á zoom.
DAGSKRÁ
Kosning fundarstjóra og fundarritara
Skýrsla stjórnar lögð fram
Reikningar lagðir fram til samþykktar
Lagabreytingar
Stefnumótun næsta árs
Kosning stjórnar og skoðunarmanna reikninga
Kosning kjörstjórnar
Önnur mál
Auglýst er eftir framboðum í stjórn.
Kosið verður um formann og tvo meðstjórnendur auk tveggja varamanna.
Vinsamlega tilkynnið framboð til stjórnar á netfangið [email protected]
Dóra Svavarsdóttir hefur ákveðið að stíga til hliðar sem formaður og gefur ekki kost á sér í stjórnarsetu. Sveinn Kjartansson og Svavar Halldórsson gefa ekki kost á ser í áframhaldandi stjórnarsetu. Þeir Ólafur Dýrmundsson og Cornel Popa hætta sem varamenn. Öll munu þau þó vera til taks að aðstoða í þeim fjölmörgu verkefnum sem Slow Food Reykjavík og ný stjórn munu ráðast í.
Skuldlausir félagar hafa framboðs og atkvæðisrétt á aðalfundi.
Sendur hefur verið út reikningur fyrir árgjöldum sem valgreiðsla í heimabanka.
Jafnframt er auglýst eftir lagabreytingartillögum og skulu þær berast á netfangið [email protected] fyrir 14. október.