Home / Fréttir / BragðaGarður Dagskrá

BragðaGarður Dagskrá

**English summery below
Tveggja daga Slow Food hátíð með fræðsluerindum, vinnustofum og matarmarkaði Samtaka smáframleiðenda matvæla / Beint frá býli.
Hátíðin verður í Garðskála Grasagarðsins og Kaffi Flóran verður opin með Slow Food tengdan mat.
Sérstök sýning á frækartöflum í tilefni að degi kartöflunnar.
Föstudaginn 20. október 11:00 – 17:00
Laugardaginn 21. október 11:00 – 16:00
Verið öll velkomin og ókeypis inn.
Dagskrá föstudaginn 20. október
kl 11:30 Slow Food á fleygiferð og aldrei mikilvægari; Dóra Svavarsdóttir formaður Slow Food Reykjavík.
kl 12:00 Philosophy of food: Biodiversity starts in our stomachs; Ole Martin Sandberg rannsakandi hjá Náttúruminjasafni Íslands. Erindið verður á ensku.
kl 12:30 Skyr er ekki það sama og skyr; Þóra Valsdóttir verkefnastjóri hjá Matís verður með fyrirlestur og smakk á mismunandi tegundum af hefðbundu skyri.
kl 13:00 Íslenska geitin, góð og gleðileg; Birna Baldursdóttir lektor við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri.
kl 13:30 Mikilvægi skordýra í líffjölbreytninni; Gísli Már Gíslason prófessor emeritus í vatnalíffræði
kl 14:00 Skógarmatur, hvernig geta skógar verið þáttur í fjölbreyttari og hollari fæðu úr héraði; Elisabeth Bernard, mannfræðingur hjá Skógræktarfélagi Íslands.
Kl 14:30 Kartöflur frá fræi til fæðu; Dagný Hermannsdóttir súrkálsdrottning talar um kartöflufræðin.
Kl 15:00 Af hverju lífrænt? VOR verndum og ræktum fer yfir mikilvægi lífrænna búskaparhátta.
Kl 15:30 Slow Food travel. Matur sem áfangastaður í ferðaþjónustunni.
Kl 16:00 Smáframleiðendur, tækifæri og möguleikar; Oddný Anna Björnsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka smáframleiðenda matvæla / Beint frá býli.
Kl 16:30 Hæglætis Mathús, hvað er nú það? Gunnar Garðarsson yfirmatreiðslumeistari á Bjargarsteini mathúsi á Grundarfirði.
Í litla Lystihúsinu verða vinnustofur:
Föstudaginn 20. október
Kl 16:00 Handverksbjór, smakk og umræður. Hinrik Carl Ellertsson leiðir fólk í allan sannleikann um bjór.
Laugardaginn 21. október
Kl 12:00 Hvernig á að lyktgreina vín, vinnustofa þar sem fólk lærir að þefa sig áfram og greina mismunandi lyktir; Gunnþórunn Einarsdóttir sérfræðingur hjá Vínbúðinni
Kl 13:00 Þari úr hlaðborði fjörunnar. Eydís Mary Jónsdóttir, einn af höfundum bókarinnar íslenskir matþörungar fræðir fólk.
Kl 14:00 Íslenskt ostasmakk. Eirný Sigurðardóttir ostadrottning Íslands leiðir fólk í smakki og spjalli um undraheim ostanna.
Í grennd við Garðskála Grasagarðsins verður sýning á Villtum erfðalindum ræktaðra nytjaplantna.
Verið öll velkomin, ókeypis inn og á alla fyrirlestra og vinnustofur.
A two-day Slow Food festival with educational talks, workshops and a food market of the Association of Small Food Producers.
The festival will take place in the Garden Pavilion of the Botanical Garden and Kaffi Flóran will be open with Slow Food related food.
A special exhibition of seed potatoes on the occasion of Potato Day.
The event is open and free for all.
Friday October 20th 11 am – 5 pm
Saturday October 21st 11 am – 4 pm
BragðaGarður er samstarfsverkefni Slow Food Reykjavík, Grasagarðs Reykjavíkur, Samtaka smáframleiðenda matvæla, Beint frá Býli, Biodice hátíð um Líffræðilega fjölbreytni 2023 og Kaffi Flóru.
Scroll To Top

Slow Food í Reykjavík notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Stillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.


Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á slowfood.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.
  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Decline all Services
Accept all Services